<$BlogRSDURL$>

Allt sem þú vilt EKKI vita um Chernobyl!


Chernobyl er bær í Norður-Úkraínu, skammt frá landamærum Hvíta-Rússlands. Þann 26. apríl árið 1986 átti sér stað skelfilegt slys í Chernobyl kjarnorkuverinu en þá sprakk einn ofna versins með hörmulegum afleiðingum. Mikil geislun losnaði út í náttúruna, alls um 2 miljarðar miljarða bequerel, 200 sinnum meiri geislavirkni en eftir sprengjurnar sem varpað var á Hiroshima og Nagasaki til samans. Það tók nokkurn tíma að slökkva í ofninum og kæfa útstreymið og rýma þurfti stór svæði umhverfis orkuverið. Mikið starf við ýmis konar hreinsun fylgdi einnig í kjölfarið og komu að því þúsundir manna. Dauðsföll sem rakin eru beint til slyssins sjálfs (þ.e. sprengingarinnar, seinni tíma áhrif eru svo annar kapítuli) eru 31, flest þeirra til komin af völdum of mikillar geislunar og bruna. Flestir þeirra voru slökkviliðsmenn sem fórnuðu lífi sínu við að reyna að slökkva eldana í kjarnaofninum. Hundruðir þúsunda Úkraínubúa, Rússa og Hvítrússa þurftu að yfirgefa hús sín og heilu borgirnar sem voru innan 30 km frá kjarnorkuverinu voru rýmdar. Talið er að allt að fjórar milljónir manna og þar af meira en tvær og hálf milljón í Hvíta Rússlandi einu búi enn á menguðu landsvæði. Í borginni Chernobyl búa enn um 10.000 manns.